11. desember 2011

Dótakassinn

11. desember: Ég er búin að komast að því að jólagjafaóskalistinn minn er svo fáránlega dýr að það er ekki séns að ég fái neitt af honum í jólagjöf. Ég bjó til borð á Pinterest fyrir jólagjafalistann minn bara svona upp á grínið, kannski bæti ég líka einhverjum skynsamlegum gjöfum inn á hann smátt og smátt fram að jólum.
Ég prófaði aftur að stífa dúka með sykurvatni í dag. Var búin að fá leiðbeiningar frá áreiðanlegu fólki um sykurlöginn en leiðbeiningarnar fólust í því að það þyrfti að setja sykurinn út í sjóðandi vatn eða sjóða vatnið og sykurinn saman í smá stund. Ég reyndi sem sagt báðar aðferðir og í stuttu máli var árangurinn ekki glæsilegur. Það fer nú alveg að líða að því að ég sæki trélímið!
Svona leggst dúkurinn niður nokkrum sekúndum eftir að ég tek hann af skálinni. Þetta er nú alveg hætt að vera fyndið.
Heimasætan og hundkvikyndið kúrðu saman og horfðu á sjónvarpið í gærkvöldi, svo sæt saman. Honum finnst svo gott að kúra undir sæng. Við erum nýbúin að hækka hitann í forstofunni og þá rauk gólfhitinn upp, núna finnst honum æði að liggja á forstofugólfinu og njóta hitans.

Stekkjastaur kemur í nótt, whoop whoop, ætli ég fái eitthvað í skóinn?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...


Ég þekki eina sem vara að gera svona sykurvatns blúndur. hún setti 50 á móti 50 og svo setti hún þetta á frauðinu eða glerinu sem hún var með sem mótinn í ofn á svona ca 40 til 45 gráðu hita á blástri í svona ca klukkutíma til og frá minnir mig kannski minni tíma. þá hélst þetta :) kv Þuríður Svava

frugalin sagði...

Þetta sykurvatn var 50/50. Ég er farin að halda að svona sykurvatn dugi bara fyrir litla hluti eins og hekluð snjókorn eða bjöllur. Prófa það kannski um jólin.

Nafnlaus sagði...

:) gangi þér vel hún var einmitt að gera svona litla bjöllur kv Thuridur

Related Posts with Thumbnails