2. desember: Þessi gluggi minnir mig á að ég leik mér ekki nógu mikið. Það eiga allir að halda í barnið í sér og leika sér af lífi og sál eins oft þeir geta. Mér finnst þessi vinna mín þvælast ansi mikið fyrir jólastússinu og jólakósí-stundunum sem mig langar að eiga nú í desember. Ég var til hálf sjö í gærkvöldi að klára og í dag ætlaði ég svo sannarlega snemma heim en endaði á því að vera til hálf fimm. Þetta gengur auðvitað ekki og í næstu viku skal sko verða breyting á, heim ekki seinna en fjögur alla næstu viku er markmiðið.
Þetta var nú strembinn dagur hjá fleirum en mér í dag. Sæta spætan var auðvitað í skólanum í morgun eins og lög gera ráð fyrir og hennar dagur endaði á íþróttatíma, svo fór hún í eins og hálfstíma þrekæfingu í fimleikunum og eins og það væri ekki nóg þá var líka bekkjarkvöld hjá henni á skautasvellinu. Þar hamaðist hún í tvo tíma. Ég var því ekki hissa á því að hún skildi sofna á meðan hún beið eftir matnum. Tinni gat auðvitað ekki stillt sig um að kúra hjá vinkonu sinni.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli