19. desember: er ekki alveg í stuði til að blogga núna, er pisst. Heimasætan fékk jólagjöfina frá vinnunni sinni (sem hún vinnur tvo daga vikunnar, síðan í ágúst) og hún fékk meira en ég hef fengið frá minni vinnu sl. 15 ár samtals. Ef þetta er ekki HFF þá veit eg ekki hvað.
Vona að jólaandinn finni mig á morgun.

2 ummæli:
Ekki láta þetta pirra þig elsku J. Í sumum vinnum hérna í Norge fá starfsmenn ipad2 í jólagjöf. Maðurinn minn fær hvorki jólagjöf né jólabónus. Svona er gæðunum misskipt. Þakkaðu bara fyrir að vera í þannig vinnu að það er ekki jólagjöfin sem heldur þér á staðnum ;).
Sendi hér með kærleiks- og pirringslaust knús til þín mín kæra með þeirri einföldu spurningu hvort það sé ekki kominn tími til að líta í kringum sig og skipta um starfsvettvang?
Eins og ég hef oft sagt við þig - þá ættum við að frumkvöðlast saman og þá getum við gefið okkur starfsmönnunum FLOTTA jólagjöf :D
(hahahha heldurðu að staðfestingarorðið hérna fyrir þetta komment hafi ekki verið rudists hahahhaha)
Takk fyrir knúsið, þurfti alveg á því að halda, hef komist yfir pirringinn.
Þú segir nokkuð með starfsvettvanginn, það er skemmtilegt að velta vöngum yfir svoleiðis...
Skrifa ummæli