Ég fór í dag á pop-up markað hjá íslenska pappírsfélaginu á Laugaveginu. Þar eru tvær konur að selja ýmislegt krúttlegt dót. Ég missti mig aðeins og keypti eitt og annað sem er fullkominn óþarfi en svo ótrúlega fallegt að manni líður vel í návist þess. Veðrið í dag var líka algjörlega fullkomið fyrir svona Laugavegsgöngu, logn og 7 stiga frost (ég hef áður talað um hvað ég dýrka logn).
Eftir þennan fallega göngutúr fór ég ásamt sætu spætunni og vinkonu hennar að heimsækja m+p. Alltaf svo gott að koma til þeirra, spjalla og fá smá kaffisopa.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli