15. desember 2011

Kökubakstur

15. desember: Það er nú pínu skondið hvað myndirnar á dagatalinu passa oft við daginn minn, sérstaklega af því að ég opna það ekki fyrr en seint á kvöldin. Mynd dagsins er af krúttlegri dúkku sem heldur á tertu. Góð vinkona mín úr vinnunni er að fara að halda stúdentaveislu í næstu viku og ætlaði að baka kransaköku. Ég bauðst til að hjálpa henni, ekki af því að ég geti bætt einhverju við þekkingu hennar á kransakökubakstri, heldur til að læra þessa list. Hún bakar nefnilega bestu kransakökur sem ég hef smakkað.
Við notuðum pulsustútinn sem önnur samstarfskona mín keypti fyrir mig í Ammeríku í haust. Þetta heppnaðist svona ljómandi vel, þ.e. eftir að við sáum að bæði hnífurinn og sigtið áttu að vera inni í hakkavélinni.
Þetta er höndin á sætu spætunni en hún vildi auðvitað hjálpa til þegar uppáhaldskennarinn hennar var í heimsókn.

Ég er alveg búin að reyna mitt besta til að standa við stóru orðin frá því í síðustu viku að hætta í síðasta lagi kl. 4 í vinnunni og koma mér heim. En ég skil ekki hvað er mikið að gera, það er nú ekki eins og það séu próf fyrir jól í 4. bekk. Aðaltíminn núna fer í að prenta út dagatöl sem ég lét 6. bekk gera í tölvutímum í nóvember og desember. Stóri prentarinn er bilaður og ég verð að nota þann litla og hann er svo leeeeeeengi að prenta að ég er að verða biluð að bíða eftir honum. En kl. hálfsjö í kvöld var ég loksins búin að prenta allt sem tilbúið var. Nú klára þeir síðustu á morgun, það eru ekki nema svona 4 sem eiga eitthvað eftir.

2 ummæli:

Sigurlaug sagði...

Sæl. Ég er að fara að stíga mín fyrstu skref í kransakökugerð og rakst á færsluna þina. og nú langar mig að spyrja þig hvar þú hafir fundið pylsustútinn og hvernig hrærivél hann passi á. Ég er með Kenwood og er að velta því fyrir mér hvort ég geti orðið mér úti um einn slíkan. Það myndi verulega auðvelda hlutina.
Kveðja, Sigurlaug Hjaltad.

frugalin sagði...

Sæl Sigurlaug
Ég á KitchenAid hrærivél. Pylsustúturinn passar á hakkavélina sem festist framan á hrærivélina. Stúturinn er keyptur í Ameríku en fæst held ég líka hér á landi.
Gangi þér vel með kransakökurnar, þetta er mjög skemmtilegur bakstur.
Kveðja
J

Related Posts with Thumbnails