5. desember 2011

Hreyfing

5. desember: Það er nú ekki hægt að fara út að hjóla þessa dagana en veðrið hefur verið yndislegt til að fá sér smá göngutúr og ég þurfti einmitt á því að halda eftir glímuna við misvitra einstaklinga í dag, maður fær svo sannarlega alla mannlega flóru inn í grunnskólana (Í hvaða mánuði er 17. júní? Getiði svarað því? Ekki þessi einstaklingur!). En göngutúrinn er líka liður í því að tábergssigið mitt verði eins aumt og bólgið og mögulegt er fyrir miðvikudaginn en þá á ég tíma hjá lækni og vona að hann geti séð hvað er að og kannski eitthvað hjálpað mér. Í haust hefur þetta versnað til muna, ég fer einn göngutúr með hundinn og er hölt í tvo daga á eftir með tilheyrandi verkjum í hverju skrefi.

Annars fór helgin í sjúklinga, elsku mamma þrírifbeinsbrotin, stjúpdóttlan fárveik á spítala og litla sæta frænka viðbeinsbrotin. Þetta flokkast vonandi undir "Allt er þá þrennt er" og verður ekki meira í bili!

Ég fékk upplýsingar um hvernig á að stífa dúka með sykurvatni í dag. Ætli ég reyni ekki einu sinni enn að búa til skál úr prjónuðu dúkunum mínum.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails