20. desember 2011

Gjafir

20. desember: Herra og frú Galin brugðu sér í bæinn seinni partinn í dag og luku við helstu jólagjafakaupin. Við erum nú yfirleitt ekki lengi að þessu þegar við förum loksins af stað. Það er nú alltaf töluverður léttir þegar sér fyrir endann á jólagjöfunum. Ég myndi samt ekki vilja gera þetta neitt öðruvísi, ég gæti t.d. aldrei verslað jólagjafir fyrr á árinu, þá hef ég enga hugmynd um hvað fólk langar í.
Síðasti kennsludagur í dag fyrir jólafrí. Dagurinn var stuttur og ljúfur, við mæðgur vorum svo heppnar að lenda á sama jólaballi og gátum því verið samferða í morgun. Sæta spætan stóð alveg undir nafni í dag með fallega brosið sitt og fallega hárið. Um hádegi í dag vorum við svo báðar komnar í kærkomið jólafrí.

Hreingjörningi fer að ljúka og nú fer að koma tími á prjónaskap, bókalestur, útsaum, góðan mat, skemmtilegar bíómyndir o.s.frv.

Sko til jólaandinn hefur náð mér :)

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails