16. desember 2011
Ferðalag
16. desember: Ég hef nú aldrei stigið fæti á skemmtiferðaskip en á það örugglega eftir einhverntímann. Það er örugglega skemmtilegt að sigla á milli framandi staða á falllegu skipi og njóta lífsins. Mér finnst það samt svolítið ellilífeyris... eitthvað og ætla að geyma það í nokkur ár í viðbót. Mig langar til Frakklands, helst út í sveit í einhver krúttleg þorp. Mig langar alltaf til Ítalíu, dásamlegt land. Svo eru norðurlöndin alltaf spennandi, sérstaklega Danmörk, þar finnst mér svo heimilislegt að vera. Ég er samt mest af öllu heimakær og finnst hvergi betra að vera en heima hjá mér. Nú eru komin nokkur ár síðan ég fór síðast til útlanda og nú fer að koma tími á næstu ferð.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli