7. desember: Jæja þá er best að setja á sig ökumannshanskana og dreifa fjáröflunardótinu sem fólkið mitt var svo elskulegt að kaupa af sætu spætunni fyrir fimleikafélagið hennar.
Ég náði loksins að taka síðustu myndina af heimasætunni fyrir hin árlegu dagatöl núna áðan. Ég hef í u.þ.b. 15 ár gert dagatöl með myndum af stelpunum til að gefa ömmum og öfum í jólagjöf. Þetta er orðið ómissandi í jólaundirbúningnum og ég verð alltaf fljótari og fljótari að þessu. Bæði núna og fyrir síðustu jól hef ég notað prentþjónustuna jola.is og hef verið afskaplega ánægð með framkvæmdina hjá þeim.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli