23. desember, Þorláksmessa: Í kvöld héldum við fyrsta jólaboðið þessi jól. Stjúpdóttirin og hennar fjölskylda komu til okkar, borðuðu kalkún og við höfðum það huggulegt saman. Hún er því miður ekki alveg laus við afleiðingar aðgerðarinnar sem hún fór í í byrjun mánaðarins enda er erfitt að halda kyrru fyrir og hvíla sig þegar maður á tvö börn og jólin alveg að bresta á. Hún er því ósköp slöpp greyið þessa dagana, vonandi nær hún að hvíla sig vel næstu vikurnar svo hún geti farið að byggja upp kraftinn að nýju. En það var gott að fá þau í heimsókn og gaman að spjalla og njóta samvista við þau. Það er nefnilega það sem svona hátíðir snúast um, að vera með ástvinum sínum.
Nú hefur pökkunum fjölgað undir trénu þó ekki hafi þeir allir skilað sér í hús ennþá. Við erum búin að koma öllum pökkum af okkur nema til ömmu en hann kemst til skila í fyrramálið.
Þá er bara einn dagur eftir af þessu dagatalsverkefni. Mér hefur fundist þetta skemmtilegt og ég held bara að það verði skrítið þegar þetta klárast. Kannski ég taki nýtt verkefni fyrir í janúar, ég væri til í að finna eina góða hugmynd á Pinterest á hverjum degi og spjalla um hana, eða kannski framkvæma!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli