Haustfrí í góðu veðri er nú ekki alslæmt. Við mæðgur fórum í keilu í morgun með G litlu systur og hennar börnum. Það er nú huggulegt að vera búin að fá keilusal svona nálægt heimilinu, alveg spurning hvort hann verður ekki notaður nokkrum sinnum í náinni framtíð. Sæta spætan ætlaði nú ekki að þora að taka þátt, hún er alltaf svolítið óörugg þegar hún prófar nýja hluti, er hrædd um að vera léleg. Þetta gekk nú samt alveg ágætlega hjá henni miðað við fyrsta skipti.
Ég er að reyna að vanda mig að fríið (sem er í raun sumarfríið mitt) fari ekki bara í heimilisstörf. Ég þarf að hvíla mig eftir törnina í síðustu viku en þá voru foreldraviðtöl á föstudeginum og svo kosningavinna á laugardeginum. Ætli sé ekki best að læra fyrir frönskuna og prjóna. Nú er ég búin með Selbu húfuna sem ég byrjaði á í lok september sjá, hér á Ravelry. Næst ætla ég að prjóna sjal úr garni sem ég fékk í pakkaleik í prjónaklúbbnum um síðustu jól.
22. október 2012
7. október 2012
Haustið
Mikið finnst mér nú helgarfríin yndisleg, jafnvel þó heilu og hálfu dagarnir fari í heimilisstörf og annað ámóta lítið spennandi. Þegar heimilisstörfin voru komin vel á veg í gærmorgun fengum við Tinni okkur göngutúr um Grafarvoginn. Við gengum 5,8 km í yndislegu haustveðri, þurru og sólríku, sem var merkilegt því rétt áður og rétt á eftir göngutúrnum var hellidemba. Nú eru liðnar 6 vikur af skólaárinu og ég er farin að ná andanum. Það er alveg ótrúlega mikill munur að kenna 2. bekk eða 4. bekk eins og ég var með í fyrra. Við höfum t.d. "hellum niður daginn" á næstum hverjum degi í nestistímanum í 2. bekk sem getur verið ansi þreytandi til lengdar.
Ég er að prjóna mér húfu úr mjúku eðalgarni frá Drops, ég er rúmlega hálfnuð með hana og klára hana örugglega mjög fljótlega. Það kom mér á óvart þegar ég fór að setja prjónaverkefnin mín inn á Ravelry hvað ég er búin að gera mikið undanfarin ár. Mér fannst þetta ekki neitt neitt en svo þegar maður safnar þessu á einn stað þá sé ég að ég hef bara verið nokkuð dugleg (klapp á bakið).
kl.
00:16
Engin ummæli:
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


