Frá því að ég man eftir mér hef ég haft gaman af alls kyns handavinnu og hef prófað ýmislegt í þeim efnum. Þegar ég var krakki var ég dugleg að búa til dúkkuföt og síðan þegar ég var aðeins eldri fór ég að sauma föt á sjálfa mig. Það lá því beinast við þegar ég skráði mig Kennaraháskólann haustið 1991 að taka textíl sem valgrein.
Ég hef prófað ýmislegt eins og t.d.:
- prjón
- hekl
- fatasaum
- útsaum
- gimb
- knipl
- tréskurð
- þæfingu
- teiknun
- málun
- skartgripagerð
- bútasaum
- keramik
- gler
Útgáfa
- 2009 Kúr og lúr, prjóna- og heklbók með uppskriftum af barnateppum. Útg. Nálin.
- 1998-2001 Fimir fingur, ýmsar föndurhugmyndir. Útg. Völusteinn.
Það er nú eflaust eitthvað fleira sem á heima á þessum lista, bæti við eftir því sem mér dettur í hug.