1. apríl 2010

Páskafrí með öllum sínum dásemdum













Mikið er nú yndislegt að vera í páskafríi. Dagarnir orðnir langir, sólin skín þó úti sé fimbulkuldi. Við mæðgur dúllum okkur hér heima við föndur, tiltekt, skipulagningu vegna komu Tinna o.s.frv.














Við systur fórum ásamt tveimur af dætrum okkar í garnbúðina Gallerí Garn í Mosó. Þar er mikið úrval af allskonar eðalgarni. Ólöf bað um þetta garn í kraga og ég gat ekki annað en látið það eftir henni. Þetta er 85% merino ull og 15% polyamide og er mjúkt og yndislegt.












Ólöf notaði tækifærið og lærði að gera brugnu lykkjuna og var mjög dugleg að prjóna kragann.













Einbeitingin skín úr svipnum.













GM kom yfir til okkar og við föndruðum páskakanínur. Uppskriftin er frá The Pearl Bee, sjá link hægra megin.













Við fórum í gær og keyptum hundagrind því Tinni kemur til okkar eftir tvær vikur og þá verður allt að vera tilbúið. Hundagrindin var mest spennandi staðurinn í húsinu í dag.

To do listinn minn fyrir páskafríið og restina af apríl nær yfir rúmlega eina blaðsíðu í dagbókinni minni en það saxast samt smátt og smátt á hann. Ég passa alltaf að hafa lítil og einföld verk á listanum inn á milli þá get ég fljótlega byrjað að strika út af honum.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails