Þennan hatt keypti ég fyrir mörgum árum í tilefni af einhverri vorferðinni í vinnunni. Hann er barðastór og léttur og gæti því verið upplagður fyrir Ítalíuferðina.
Nú hefur unglingurinn ákveðið að prófa að flytja að heiman og hefur tekið holu á leigu ásamt vinkonu sinni. Þetta verður lærdómsríkt fyrir þær að prófa að reka heimili þó í mini útgáfu sé. Á meðan nota ég tækifærið og þríf unglingaherbergið sem veitir sko ekki af því unglingurinn hefur séð um þrif (eða ekki) þar inni sjálf nú í nokkur ár.

1 ummæli:
nei nei - þessi hattur verður bara fyrir þér....sá annars svipað dæmi í H&M í gær....fann ekkert sem mér fannst peninganna virði - enda líklega bara á ljótri derhúfu EF það verður ekki bara regnhattur sem þarf að fara á hausinn hmmmmm!
Skrifa ummæli