
Ég byrjaði að vinna á miðvikudaginn. Það er nú alltaf ágætt að mæta aftur eftir sumarfrí þó ég hefði alveg getað hugsað mér að vera 2-3 vikur í viðbót í fríi. Ég er að fá nýjan nemanda í bekkinn minn, það er stúlka sem kemur frá Texas í Bandaríkjunum. Hún talar enga íslensku og ekki mamma hennar heldur. Pabbi hennar er íslenskur en hefur búið úti í 25 ár, talar litla íslensku en skilur hana vel. Mamman og stelpan komu í viðtal til mín á föstudaginn og ég talaði auðvitað við þær á minni "reiprennandi og lýtalausu" ensku, en það var svo skrítið að það var eins og þær mæðgur skildu mig svo illa! Ég hefði átt að spyrja bara "are you married?" eins og sumir hefðu gert ;-)
Við fórum í afmæli til Brynju og Bogga á föstudaginn, það var frábært. Þórunn var að passa og Ólöf var ekki alveg sátt, þannig að ég skrapp heim um kl. 10 til að koma Ólöfu í rúmið. Ólöf sofnaði svo upp úr hálf ellefu og ég sofnaði mjög skömmu síðar. Ég vaknaði svo um hálf eitt og dreif mig aftur í partýið, ég er svo mikil partýmanneskja, eða þannig!
Við fórum svo á tónleika á Miklatúni í gærkvöldi og enduðum daginn á flugeldasýningunni. Tónleikarnir voru mjög góðir og ég notaði tækifærið og tók myndir af flugeldunum með þrífætinum á tíma.
Og síðast en ekki síst ... ég keypti mér fartölvu í dag. Dell, Vostro, 1500. Vonandi frábær vél, sölumaðurinn sagði a.m.k. að ég yrði ekki svikin af þessari. Nú er batteríið í hleðslu, Gunnar er búinn að koma og græja þráðlausa netið fyrir mig (takk Gunnar) og svo vantar mig bara aðeins að tala við Magna, út af sottlu. Þá er allt klárt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli