21. júlí 2012

Esjan

Skellti mér á Esjuna í fyrsta skipti ever í vikunni. S vinkona mín var svo elskuleg að draga mig með sér og stóð sig eins og hetja að hvetja okkur mæðgur áfram. Við vorum fjögur sem fórum á fjallið, S, ég, sæta spæta og hundurinn Tinni.




Samkvæmt Endomondo var þetta 595 m hækkun, tók 2 tíma og 45 mínútur og leiðin var 6,16 km. Þegar við komum upp að Steini skall á svarta þoka sem létti um leið og við lögðum af stað niður aftur. Myndirnar eru í boði S vinkonu en hún var svo sniðug að koma með myndavél.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails