Þá er allt klárt fyrir jólin. Búin að kaupa allar jólagjafir, senda öll jólakort og þrífa allt sem þarf að þrífa. Bara eftir að skipta á rúmunum sem verður gert á miðvikudagsmorgun. Siggi sér alltaf um eldamennskuna og ég sé um að leggja á borð og strjúka burt síðustu rykkornin.
Á morgun er planað að fara í heimsókn til ömmu og afa og borða hangikjöt um kvöldið. Við reynum að fara sem minnst út á Þorláksmessu og aðfangadegi, það er hvort eð er allt ófært út af kirkjugarðinum. Borgar sig nú ekki að stressa sig á svoleiðis umferðarhnútum.
2 ummæli:
Ætli ég endi ekki bara á að leggja í götunni þinni og labba í garðinn ;)
Knúsar á ykkur,
e
Það væri nú í góðu lagi, alltaf nóg pláss hjá mér.
Knúsar til baka
J
Skrifa ummæli