29. desember 2008

Það er svo gaman að prjóna

Ég er vel hálfnuð með hyrnuna úr fallega Kauni garninu úr Nálinni. Ég vildi bara að ég ætti eins fallega prjóna og hún systir mín! Ég á örugglega eftir að prjóna aðra svona þegar Helga fær nýja sendingu með fleiri litum. Ég væri líka til í að gera peysu á mig úr þessu garni.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æðislegt. Náði ekki að fara í Nálina í dag - stefni þangað á morgun. Spurning hvort þær eiga lit fyrir mig....kannski eiga þær fjólublátt og þá ætla ég að hugsa um þig ;)

Guðný sagði...

ég get ekki betur séð á þessari mynd en að neðri hluti hyrnunnar sé FJÓLUBLÁR, hvað er að klikka??

frugalin sagði...

Þetta er EKKI fjólublátt, skjárinn hjá þér er eitthvað vanstilltur! Eða myndatakan ekki nógu góð.

Nafnlaus sagði...

var einmitt að taka eftir þessu Guðný - þetta er deffinettlí fjólublátt :)
kaupti mitt kauni áðan og ætla að byrja í kvöld

Related Posts with Thumbnails