15. desember 2008

Jólasveinar einn og 8 (... hmmm 1 + 8 = 13 ! )

Ein ég sit og tölvast, inn í litlu húsi ...
En þessir jólasveinar, þetta er nú meiri snilldin, ég þarf ekki að segja nema einu sinni: burstaðu tennurnar og farðu að sofa. Hvar eru jólasveinarnir hina mánuði ársins þegar maður þarf að segja þessa setningu 14 sinnum sama kvöldið.

Skórinn fór í gluggann að kvöldi 11. des eins og lög gera ráð fyrir.
  • 12. des: Stekkjastaur
  • 13. des: Giljagaur
  • 14. des: Stúfur
  • 15. des: Þvörusleikir
  • 16. des: Pottaskefill
  • 17. des: Askasleikir
  • 18. des: Hurðaskellir
  • 19. des: Skyrgámur
  • 20. des: Bjúgnakrækir
  • 21. des: Gluggagægir
  • 22. des: Gáttaþefur
  • 23. des: Ketkrókur
  • 24. des: Kertasníkir

Eins gott að ruglast ekki í þessu, ég man alltaf bara fyrstu þrjá og svo þann síðasta.

mmmmm var að klára risastóra súkkulaðistykkið sem jólaálfurinn minn gaf mér í vinnunni.

Ó, já ég var að kaupa mér nýjustu kvenspæjarabókina, "Bláir skór og hamingja". Ég hlakka ekkert smá til að lesa hana, yndislegar bækur.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails