- Ég bakaði fleiri jólasmákökur á mánudagskvöldið
- Þreif og skreytti stofugluggana á þriðjudagskvöldið
- Frábærlega skemmtilegur SPK fundur á miðvikudagskvöldið
- Kennóstelpuhittingur á Jómfrúnni á fimmtudagskvöldið
- Bæjarferð í dag, heimsókn í MMM, smá kikk á Laugaveginn og í Nálina.
- Laufabrauð og piparkökumálun um helgina hjá mömmu
Þannið að það er ekki skrítið þó að ég hafi ekki verið mikið á MSN eða Facebook í vikunni, enda allt í lagi að taka stundum frí þar. Í kvöld er planið að prenta út límmiðana fyrir jólakortaumslögin, prenta út prufu af jólakortunum og reyna að klára dagatölin fyrir prentun. Talandi um prentun! Ég fór í A4 í gær til að kaupa prenthylki fyrir prentarann, þau höfðu hækkað um helming! Það kostaði 10.000 kr að kaupa eitt svart og eitt hvítt hylki. Eins gott að maður er á súperlaunum!
Önnumkafnar jólakveðjur frá Jóhönnu jólaóðu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli