15. febrúar 2009

Kósímorgunn

Fékk smá prívattíma í morgun. Þ hjá vinkonu sinni og Ó og S á fimleikamóti. Náði að gera heilmikið, hlustaði á einn og hálfan fyrirlestur í íslenskunáminu, skipti á rúmunum, braut saman þvott, sett í tvær þvottavélar, talaði heillengi við Róslín á MSN og fékk mér huggulegan hádegisverð í friði og ró.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert svo mikil nostalgíukona. Hefðir nú alveg getað boðið Melgerðisbúanum í svona fínan hádegisverð - með bleikri blúndu :).
Knúsar á þig duglega stelpa.

Nafnlaus sagði...

Hugsunarleysi af minni hálfu, man eftir þér næst. Samt óvíst hvenær næsta einvera verður, vonandi fljótlega.

Nafnlaus sagði...

Innihald bollans er mjög girnilegur og bollinn áhugaverður. :)

Kv. Nína M :)

Related Posts with Thumbnails