Þetta er teikningin sem ég fékk frá litlu ungfrúnni á bænum til að sauma eftir fyrir öskudaginn. Ég gerði að sjálfsögðu eins og mér var sagt, enda hlýðin kona með eindæmum, fór áðan og keypti efni í Virku og byrjaði að sauma strax eftir matinn. Var að klára kjólinn núna rétt áðan og nú þarf bara að hanna hattinn á morgun.Vona bara að litla ungfrúin verði ánægð þegar hún vaknar. Ef einhver sér ekki hið augljósa þá er þetta nornakjóll og hún og pabbi hennar ætla að versla nornanef á morgun.
1 ummæli:
Nei o hvað þetta er sæt teikning!
Hún verður án efa flottasta nornin á öskudaginn :D
Skrifa ummæli