Þessa köku gerðum við frænkurnar fyrir afmæli JÁG um daginn og auðvitað vakti hún mikla lukku. GMG er að verða snillingur í sykurmassakökum.
Um daginn var sýnikennsla í Gerðubergi. Þar var hægt að læra að gera rósir og kökuskreytingar úr smjörkremi. Sæta spætan var alveg að ná þessu en þá var smjörkremið orðið of heitt og rósirnar láku niður.
Það er alltaf gott að halda í barnið í sér, þetta eru plastdiskarnir sem eru í nestistöskunni okkar fínu. Við vorum að bæta við tveimur diskum í safnið.Ég keypti poka af filtkúlum í Söstrene Grene um daginn og bjó mér til hálsmen.
Og að lokum tvær af kvikyndinu, hann lætur nú ýmislegt yfir sig ganga greyið.







1 ummæli:
íííh takk fyrir nýtt blogg og takk fyrir knúsið í vikunni - frábært að hafa hitt á þig í eyðugati ;)
hafið það gott um páskana
Skrifa ummæli