16. október 2007

bílastæðaklukkan mín góða

Litla sæta vörtusvínið mitt fór í skoðun um daginn og þá fékk ég bílastæðaklukku í leiðinni. Við systur fórum svo í bæinn um daginn og þegar ég ætlaði að fara að leita að peningum í stöðumælinn sagði systir, bíddu áttu ekki bílastæðaklukku? Við skelltum klukkunni í framrúðuna og stilltum hana samviskusamlega og fórum hæstánægðar að rölta á Laugaveginum. Svo færðum við bílinn, stilltum klukkuna aftur og vorum yfir okkur sælar að eiga svona flotta bílastæðaklukku. Þegar ég kom heim fór ég auðvitað að monta mig af minni fínu klukku, því Sigga bíll er svo mikill eyðsluhákur að hann fengi aldrei svona flotta klukku. Hann sagði bara: já, flott hjá ykkur en er ekki laugardagur og frítt í bílastæðin?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

magnaðar systur ;)

Nafnlaus sagði...

hahahahhahhahhahhah hversu fyndið er þetta!!!!!! ég hélt ég myndi aldrei hætta að hlæja :) já þetta er sko snilld minn kaggi á líka svona fína bílastæðaklukku :)
kossar og knús frá okkur, góða ferð og hafið þið það nú gott í Budapest !!!

Related Posts with Thumbnails