25. apríl 2008

Dúllí dúllí

Jæja við systur vorum í opnuninni í dúllubúðinni hjá dúlluvinkonunni. Ógó fint og flott og bleikt hjá minni, til hamingju með þetta dúllan mín.

Nóg að gera um helgina hjá okkur, undirbúningur, þrif, meiri undirbúningur og svo fermingin á sunnudaginn. Frekar lítið stress í gangi, enda ótrúlega flott fólk að hjálpa mér með þetta allt, takk elskurnar mínar. Ég hlakka ekkert smá til að setja saman kransakökurnar og skreyta þær á morgun, önnur verður með fiðrildum og hin með blómum. Það er líka smá vinna eftir við gestabókina sem verður unnin í kvöld, ég er nefnilega búin að fá hitablásarann lánaðan á verkstæðinu, hehehe, ég fór í gær til að fá hann lánaðan og fann hann ekki þannig að ég spurði L sem er pólskur og vinnur á verkstæðinu og talar litla íslensku og enga ensku.

Ég: Veistu um hitablásarann?
L: eehhh lykla?
Ég: nei, ekki lykla, hitablásara?
L: ehhh lykla?
Ég: nei ég er með lykla (sýni þá), mig vantar hitablásara (blæs út í loftið)
L: ahh, já (bendir upp í loftið þar sem loftræstikerfi verkstæðisins er)
Ég: nei, nei bara lítill (sýnt með táknum með tali)
L: ahh já (og fer og leitar en finnur ekki, segir svo stuttu seinna,) B er með heima
Ég: geturðu beðið hann að koma með hann á morgun
L: ha hringja morgun?
Ég: nei hringja núna, koma með á morgun (sagt nokkrum sinnum þar til skildist)

Svona er nú það.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Og hvar er svo dúllubúðin til húsa svo hægt sé að kíkja og skoða hvað er í boði?

Bestu kveðjur, Nína M :)

Nafnlaus sagði...

múahahhahahhaa - ég hef ábyggilega hljómað álíka vitlaus og þessi starfsmaður þegar löggumennirnir gripu mig glóðvolga í dyrunum í fyrrinótt hahaha ;)

takk dísin mín fyrir alla hjálpina - nú er bara spurning hvort þig vanti ekki smá vinnu frá 12 - 14 á mánudögum hehe annaðslagið - það er sko net-tenging á staðnum :)

knúsar og gott gengi með ferminguna á morgun :)

Related Posts with Thumbnails