3. janúar 2009

Skemmtilegur dagur

Í dag fór ég með nokkrum Flickr-konum í ljósmyndaferð að Rauðhólum. Það rigndi stanslaust en okkur tókst samt að mynda svolítið án þess að skemma græjurnar. Nokkrar voru með regnhlíf á myndavélina en ég á ekki svoleiðis svo ég tók bara með mér plastpoka og skæri, sem gerði nokkurn vegin sama gagn. Það hefði samt verið gott að eiga húdd á linsuna því ég var alltaf að þurrka dropa af henni. Nú klikkaði ég ekki á því að bera þrífótinn með mér (eins og í Öskjuhlíðinni) og náði þar af leiðandi flestum myndum óhreifðum.

Nú eru jólin búin hjá okkur, við Þórunn tókum niður jólaskrautið áðan. Það er allt komið ofan í kassa nema jólasveinninn við útidyrnar og serían utan á húsinu. Það fær að vera svolítið lengur.
Mér finnst alltaf svo gott að taka jólaskrautið niður, það verður allt svo hreint og fínt þegar það er farið en samt finnst mér æðislegt að skreyta fyrir jólin.

Siggi eldaði svo sterka grænmetissúpu og bakaði brauð með í kvöldmatinn, en það var bara forrétturinn því í aðalrétt var hnetusteik með villisveppasósu, mmmm gott.

Planið er svo að vekja krakkaormana klukkan hálfníu í fyrramálið svona aðeins til að venja þær við áður en skólinn byrjar aftur. Vona bara að ég geti vaknað svona snemma!

Ó já ekki gleyma því mikilvægasta, ég er búin með Kauni-hyrnuna. Ég á bara eftir að taka flotta mynd af henni til að sýna.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails