12. janúar 2009

Orðin fjörtíuogeins

Nú eru bara 7 mínútur eftir af afmælisdeginum. Mig langar að þakka fyrir allar kveðjurnar og gjafirnar. Þetta var bara ljúfur og yndislegur afmælisdagur. Ég er búin að vera í allt kvöld að búa til heimasíður fyrir margmiðlunarnámið mitt, það á að skila öllum verkefnum á vefinn. Ég er í þremur fögum og mér sýnist það taka svona eitt til tvö kvöld að búa til heimasíðu fyrir hvert fag áður en ég get byrjað að gera verkefnin sem á að setja á síðurnar. En mér finnst þetta gaman og sé ekki eftir tímanum í þetta. Ég kunni t.d. ekkert á Illustrator fyrir helgi en nú er ég á fullu að nota það til að gera bakgrunna fyrir síðurnar. Búin að læra helling bara um helgina.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails