23. júlí 2010

Ferðasaga - seinni hluti

Á sunnudeginum fórum við stelpurnar (Guðný og Lilja voru heima því Lilja þurfti að leggja sig) inn í sveit til Karenar, það var gaman að sjá sveitina hennar og stelpurnar duttu strax inn í leik og vildu varla fara aftur til baka. Karen benti mér á að passa að Tinni og minnkahundarnir hennar þrír hittust ekki því þeir myndu éta hann í orðins fyllstu merkingu. Hundarnir hennar voru því lokaðir inni þegar við komum en þegar við vorum að fara voru þeir komnir út þannig að Þórunn hélt á Tinna en það stoppaði samt ekki einn hundinn í að stökkva upp og glefsa í hausinn á honum. Það sluppu samt allir vel frá þessum hildarleik.

Þegar Lilja var vöknuð ákváðum við Guðný að fara og skoða Ytra-Lón, en þar er nýbúið að setja upp gistiaðstöðu og jafnframt var auglýst í bæklingnum um Káta daga að þar væri listasýning. Gunnar hafði farið með Konna og Jóhanni að skoða fuglabjörg út á Langanesi. Við lögðum af stað og keyrðum heillengi og vorum eiginlega komnar á þá skoðun að við værum villtar þegar afleggjarinn að Ytra-Lóni sást loksins. Í stuttu máli var þetta nú ekki ferð til fjár, vörusvik kom upp í hugann, því gistiaðstaðan sem var til sýnis var kuldaleg og listasýningin samanstóð af passamyndum af kindum og teikningum eftir börnin á bænum.

Seinni partinn fórum við í heimsókn til Stínu og Rabba og þar var ísbjörn í heimsókn, ekki alvöru ísbjörn heldur hundurinn hennar Kristínar Ýrar sem er grænlenskur sleðahundur, yndislega ljúfur og góður en feldurinn á honum var ævintýralega mikill og það snjóaði hárum af honum, sem gerði Stínu einstaklega glaða.

Um kvöldið vorum við boðin í mat til Erlu og Konna. Þau eru búin að taka húsið sitt í gegn og það var gaman að skoða hjá þeim, þau eru bæði svo smekkleg. Eftir matinn fórum við út á Langanes aftur og nú hafði Karen meðferðis lykil að Sauðaneshúsinu sem er afar fallegt gamalt hús, eitt af elstu steinhúsum á norðurlandi, sem búið er að gera upp og setja upp sýningu á gömlum munum úr sveitinni. Við fórum líka í fjöruna við flugvöllinn, og skoðuðum gömlu brotlentu flugvélina.

Á mánudagsmorguninn þegar við vorum á leiðinni út úr þorpinu komum við við í Fánasmiðjunni og krakkarnir fengu að velja sér boli sem Erla og Karen skreyttu að þeirra óskum. Konni hafði bent okkur á kvöldið áður að fara Vopnafjarðarleiðina í gegnum Mývatm heim sem við gerðum og sáum sko ekki eftir því, bæði er vegurinn góður, eiginlega malbik alla leið, og svo er leiðin líka falleg. Við stoppuðum soldið á Akureyri og um kl. 5 héldum við mæðgur heim en Guðný og co ætluðu að gista nokkrar nætur í viðbót á Ólafsfirði. Heimferðin gekk vel og við vorum komnar heim um hálftíu og vorum þá búnar að vera á ferðalagi í 11 tíma.

Stelpurnar eru spenntar að fara aftur og ég býst við að við förum aftur næsta sumar og stoppum þá jafnvel lengur. Ég vildi samt að það væri hægt að komast á milli R og Þ á hraðvirkari hátt.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails