21. nóvember 2010

Nýr matseðill

Ég sá þessa hugmynd á einhverri blogsíðu núna um daginn, get engan vegin munað hvaða, nema þar hafði konan notað járnbökunarbakka sem bakgrunn og svo sett segul aftan á miðana. Ég hugsaði með mér að ég myndi vera í vandræðum með að finna stað fyrir bakkann, þannig að ég ákvað að minn matseðill færi beint á ísskápinn. Einfalt, ekki satt? Ég gerði auðvitað fullt fullt af miðum.
Á miðvikudaginn var alveg geggjuð þoka úti svo ég ákvað eftir þemadag nr. 2 að taka smá pásu áður en kennarafundurinn byrjaði og skjótast og taka myndir af þokunni. Ég fór nú ekki langt en var fegin að ég brá mér aðeins frá því ég var eins og sprungin blaðra eftir daginn.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rambaði inn á bloggið þitt :) Skemmtilegt og flott blogg. Finnst matseðils hugmyndin frábær .. hvernig er framkvæmdin?

-Ásta

frugalin sagði...

So far so good, þetta er fyrsta vika í nýju kerfi. Keypti í matinn fram á miðvikudag í gær og þarf því ekki í búð fyrr en á fimmtudaginn, sem er alltaf gott. Það er besta sparnaðarráðið í matarinnkaupum að versla sjaldnar. Ég á samt eftir að sjá hvað heimilisfólkið verður duglegt að hjálpa mér að velja í matinn. Kannski verður það skemmtilegra þegar maður þarf bara að púsla þessu upp á ísskápinn.

Nafnlaus sagði...

Þekki það ágætlega. En mér þætti gaman að fá að vita hvernig þú útbjóst miðana og það ;)

-Ásta

frugalin sagði...

ok, hehehe, skil þig núna. Ég gerði miðana í Photoshop en það er auðvitað hægt að gera þetta í word líka. Klippti út og setti lítinn segul á bakvið. Ég hef hugsað mér þegar ég er búin að finna út fleiri matarrétti að gera þetta aftur og plasta miðana til að þetta endist lengur en kannski er það óþarfi. Ég prentaði út á kartonpappír (180g) og segulinn keypti ég í "Litum og föndri" á Dalvegi í Kópavogi. Upprúlluð lengja sem hægt er að klippa niður, 75cm á tæpar 400kr.
Vonandi svarar þetta spurningunni, gangi þér vel.

frugalin sagði...

sorry, Litir og föndur er á Smiðjuvegi. Föndra er á Dalvegi og ég er viss um að segullinn fæst þar líka.

Related Posts with Thumbnails