15. nóvember 2010

Ljúfur laugardagur

Dekurdagur fyrir mig á laugardaginn! Jú jú það gerðist, byrjaði daginn á prjónakaffi í Nálinni - skemmtilegur félagsskapur kátra myndarlegra kvenna, fór síðan í bæinn - var að leita að jólagjöfum fyrir dæturnar fyrir tengdó, endaði síðan daginn á skemmtilegri myndlistarsýningu í Hafnarhúsinu en þar var verið að opna sýningu á verkum barna í 7. og 8. bekk í anda Errós. Skemmst er frá því að segja að tveir nemendur í skólanum mínum gerðu það gott á þessari sýningu, svo flottir nemendur í skólanum mínum og ekki síðri kennarar.

Ég lagði litla vörtusvíninu við Ráðhúsið og stillti bílastæðaklukkuna (því ég er á svo umhverfisvænum bíl) og þegar ég kom til baka hafði annar trítill troðið sér í sama stæði - bílastæðavandi miðborgarinnar hvað!!!

Um kvöldið eldaði svo herra Galinn frábæran kvöldverð, humarsúpu og silung í forrétt og fiskrétt í ofni í aðalrétt, mmmm dásamlega gott. Kvöldinu var síðan eytt með fjölskyldunni fyrir framan sjónvarpið við misgóða dagskrá RÚV.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails