1. nóvember 2010

Rómantík

 Við fórum í Ráðhúsið um helgina að skoða sýninguna Handverk og hönnun. Sýningin í ár var einstaklega falleg og margt sem ég hefði viljað eiga. Ég keypti filmu í glugga frá Svartfugli sem ég er búin að setja í baðgluggann og það kemur alveg svakalega vel út. Ég á slatta eftir af svona filmum, það voru margar greinar á blaðinu, þannig að ég á örugglega eftir að setja þetta í fleiri glugga, svona þegar þeir verða orðnir hvítir.
 Ef allt húsið væri eins krúttlegt og litla baðið þá væri það nú flott. Þetta kemur allt með kalda vatninu.
 Hundkvikindið fylgir mér eins og skugginn, hér er hann að bíða á meðan ég tek myndir af baðinu. Ósköp ljúfur þessi elska.
 Gott kaffi í fallegum bolla og jólasmákökur með, getur ekki orðið miklu betra.
 Smá stemning á pallinum, alltaf svo gott þegar er logn úti. Reyndar finnst mér allt í lagi að heyra gnauðið í vindinum ef ég þarf ekki að fara út.
 Mér finnst þessi kertastjaki sem ég keypti fyrir mörgum árum af samstarfskonu minni alltaf jafnfallegur, þar fyrir innan er engill sem Þórunn gerði þegar hún var í 3. bekk og er líka í uppáhaldi.
Við Ólöf erum búnar að taka fyrstu umferð í jólasmákökum, mig klæjar í fingurna að halda áfram, haustmyrkur og jólasmákökubakstur er einstaklega ljúft.

haust      vetur
rómantík snjór kuldi
myrkur jólaljós ylur
ljós fallegt ró
birta friður
ást

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta eru mjög fallegar myndir hjá þér Jóhanna og já smákökur nammmmmmmmmmmmmm
kv Þuríður

Nafnlaus sagði...

Vá hvað ég er ekki sammála þér með handverkssýninguna - mér fannst hún frekar klén og pirrandi hvað alltaf sömu aðilar fá inni á þessum sýningum....sé ekki að ég þurfi að mæta þar næstu árin ;)
e

frugalin sagði...

Svona er smekkur manna misjafn e
Ég fór í fyrra og mér fannst bara heilmargt nýtt og fallegt í ár, en það er alveg satt að það eru voða mikið sömu aðilar sem eru ár eftir ár en samt alltaf eitthvað nýtt á milli.

Nafnlaus sagði...

nkvl....
en mig langaði alveg í kaffibollann og smákökurnar þínar og svo finnst mér límmiðinn í glugganum gordjöss
e

Unknown sagði...

Sæl hvernig næ ég sambandi við þig? Er að skrifa grein um grænan lífstíl og vil endilega fá að heyra í þér. Kv Indíana blaðamaður á DV
indiana@dv.is

Related Posts with Thumbnails