24. nóvember 2010

Logn

Fór út að ganga með hundinn áðan í æðislegu veðri. Uppáhaldsveðrið mitt er logn, uppáhaldsskapið mitt er logn, uppáhaldsfélagsskapurinn minn er logn. Ég held að ég sé ekki mikil félagsvera frekar svona einvera. Það er eitthvað svo mikill erill í vinnunni þessa dagana, börnin hávær, hávaði á kaffistofunni o.s.frv. sem minnir mig á það að það eru bara 17 kennsludagar eftir fram að jólafríi.

Tók þessa mynd fyrr í haust í Fókusrölti við Álafoss. Langar að fara aftur þangað, þetta er algjör perla, svo fallegt þarna. Við ætlum að halda jólafund SPK á kaffihúsinu við Álafoss núna fljótlega, er að vinna í því að finna góðan dag.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails