Þessi mynd er tekin í jólaþorpinu í Hafnarfirði um síðustu helgi en þá fórum við mæðgur ásamt kvikyndinu í Cavaliergöngu um Hafnarfjörðinn. Tinni var alveg að tapa sér af gleði að sjá alla þessa hunda og ekki nóg með það heldur varð hann ástfanginn af 8 mánaða tík sem heitir Kókó. Það er nú alveg greinilegt að hann þarf meiri æfingu í svona hópgöngu hehehe.
Jólafríið mitt byrjaði á hádegi í dag, vikan er búin að vera frekar strembin og ég hlakkaði til að eiga rólegan og ljúfan dag með nemendum mínum á litlu jólunum en einn af nemendum mínum var ekki á sama máli og var með dónaskap og leiðindi. Ég ætla samt ekki að taka það með mér í jólafríið heldur tækla það á nýju ári.
Helgin er vel plönuð í kringum dæturnar, alltaf nóg um að vera hjá þeim. Ég náði að kaupa 6 jólagjafir í dag eftir vinnu og vonandi náum við klára mestan part af restinni um helgina á meðan stelpurnar verða hjá mömmu og pabba að hjálpa þeim að skreyta jólatréð. Ef veðrið verður alveg brjálað ætla ég samt að reyna að kúra bara í sófanum og horfa á góða mynd. Við systur ætlum svo í næstu viku í ljúfa bæjarferð með kaffihúsi og kósíheitum. Oh hvað ég hlakka til.
Ó já og ekki má gleyma að ég fékk 9 í einkunn fyrir kvikmyndaáfangann minn í Borgó, júhú, sú gamla er bara að standa sig.

2 ummæli:
Til hamingju með einkunnina og að vera komin í jólafrí. Ég á einn dag eftir, mánudaginn fram yfir hádegi....!
Stefni líka á að ljúka jólagjafainnkaupum í kvöld eða næstu daga ..... ehe ..... sko áður en jólin koma ;)
kv.
e
Takk takk, já ætli sé ekki best að klára þessar jólagjafir sem fyrst og fara að njóta frísins.
Gangi þér vel með síðasta vinnudaginn e.. mín og bið að heilsa sjúklingnum.
Skrifa ummæli