19. desember 2010

síðasta helgi fyrir jól

Litla stelpan mín orðin svo stór :-) Svona var hún fín á jólaballinu í skólanum á föstudaginn.

Þessi síðasta helgi fyrir jól er alltaf svolítið annasöm, nóg að gera hjá öllum. Við erum búin að fara á tvö jólaböll þessa helgi, syngja í messu, skreyta jólatréð með ömmu S og afa H, skreyta jólatréð okkar, fara á fimleikaæfingu, kaupa 9 jólagjafir, pakka inn jólagjöfum, baða hundinn, þrífa hús og bíl og fara í bíó. Ég er samt örugglega að gleyma einhverju hehehe.
Jólasveinarnir sem mættu á jólaball Fjölnis voru heldur skemmtilegri en þeir sem mættu til okkar í skólann. Þessir voru greinilega alvöru!!!
Ég hlakka svo til að prófa linsuna sem ég fæ í jólagjöf, 28mm, f1.8. Það verður ekkert smá gaman að prófa hana. Þessar myndir eru teknar með 50mm linsunni minni og heimatilbúnu móti framan á henni, galdurinn er að stilla á f1.8 og þá koma hjörtun þegar maður stillir fókusinn aðeins úr fókus. Það kom meira að segja hjarta í glampann í augunum á ÓH, ótrúlega sætt.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails