26. september 2009

Ótrúleg vika


Fimmtudaginn 24. september kom þessi fallegi drengur í heiminn, ömmubarn nr 2 hjá mér. Þetta gekk allt saman vel og öllum heilsast eins og best verður á kosið.
Í vikunni var líka mikil togstreita í vinnunni vegna skýrslu sem á að kynna fyrir foreldrum í næstu viku. Hugmyndin er að breyta Engjaskóla í safnskóla á unglingastigi og senda öll litlu börnin okkar yfir Mosaveg ýmist í Borgaskóla eða Víkurskóla. Ég er verulega ósátt við þetta og finnst leyndin sem hefur hvílt yfir þessu með ólíkindum. Ég lít það alvarlegum augum að nokkrir foreldrar (sennilega 4) geti tekið sér það bessaleyfi að rústa tilveru 200 barna í þessu hverfi og öðru eins í næstu hverfum, bara af því að þeirra eigið félagslega hefta barn á í erfiðleikum með að finna sér vini í fámennum skóla. Einfaldasta lausnin fyrir þessa foreldra hefði verið að senda börnin sín í Rimaskóla, þar er mjög stór skóli og "betra" fyrir börnin að finna vini. Einmitt!!!
Fundurinn er í Engjaskóla kl. 17:30 fimmtudaginn 1. október.
Andspyrnuhreyfingin verður sett í gang, það er ekki spurning!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Jóhanna og innilega til hamingju með fallega ömmudrenginn nr.2 :)

Ég er hjartanlega sammála þér með breytingarnar sem eru væntanlegar á skóla barnanna okkar og skil ekki leyndina sem hvílt hefur yfir þessu svona lengi. Sunna sagði okkur að á síðasta skólaári hafði skólastjórinn rætt eitthvað við unglinganna um væntanlegar breytinar á skólanum og ég beið eftir að okkur foreldrunum yrðu látin vita en nei, það kom ekkert frá henni fyrr en núna. Og svo misskildi ég þetta allt saman sem Sunna sagði okkur, hélt að Engjaskóli yrði breytt í barnaskóla en ekki öfugt.

Mér finnst þetta hræðileg hugmynd og engan vegin réttlætanleg að fara að rífa öll börnin úr þeirra öruggu skólaumhverfi og tvístra þeim um hverfin hérna, það kann ekki góðri lukku að stýra, engann veginn! Það er greinilega allt að fara á annan endann í þessu þjóðfélagi okkar.:/
Ég hef ekki rætt þetta enn við krakkanna mína og ætla að bíða með það eftir fundinn.

Sjáumst á fundinum.
Kær kveðja, Nína Margrét. :)

Barbara sagði...

Johanna,
Congratulations on your grandson! He is absolutely beautiful! Did I read correctly that his birthday is Sept. 24th? That is my Andrew's birthday, too! Greetings from Minnesota with love to the new one and his mother.
I truly enjoy your blog! You are so creative and such a great photographer it is such fun to visit and see what is happening in Iceland.
Love to you all,
Barbara

Related Posts with Thumbnails