
Picnic á pallinum í síðustu viku. Guðný og fjölskylda kom og mamma líka. Ég bakaði brauð og bláberjamuffins.

Muffins með bláberjum út í vöktu lukku hjá öllum nema Ólöfu sem fannst eins og það væri sulta í þeim og hún þolir ekki sultu.

Lilja fór í pottinn með Ólöfu, Guðrúnu Maríu og Ástu og líkaði bara vel.

Guðný sat og prjónaði í góða veðrinu.

Á laugardaginn fórum við í sumarbústaðinn í Svínadal.

Á sunnudeginum komu Sigurvin, Rúna og börn til okkar.

Við héldum hálfgerða kvöldvöku á sunnudagskvöldið með gítarspili og söng.

Alltaf stuð að hoppa á trampolíninu.

Við Siggi spiluðum rommý og ég vann ;-)

Rúna, Ólöf, Elín og ég fórum í göngutúr til að skoða alla máluðu steinana í hlíðinni fyrir ofan bústaðinn.

Í bústaðnum eru fullt af dönskum tímaritum sem maður getur gleymt sér við að skoða.
Kvöldvakan okkar í logni og hlýju veðri. Við hlustuðum á Árna stjórna brekkusöng í útvarpinu. Ég held að flestir syngi betur en kallinn, svei mér þá.

Kertaljós og rómó á pallinum.

Daníel lék sér með myndavélina allt kvöldið.

Brunch á pallinum á mánudagsmorgun í blíðunni.
3 ummæli:
frábært, litli bústaðurinn virkar bara nokkuð stór á myndunum!!
Guðný
hehe, það gerir gleiðlinsan!
znilld :)
e
Skrifa ummæli