Bjarni Marel, ömmustrákurinn minn, kom í heimsókn í dag með mömmu sinni og stóru systur. Hann var svo flott dressaður því hann var að fara í afmæli til frænku sinnar. Hann var í gallabuxum og prjónavesti, algjör gæi ;-) en svo var hann líka í því sem ég prjónaði á hann, peysu, sokkum, húfu og með fína teppið. Það var svo skemmtilegt að fá þau í heimsókn.
Hér sést peysan sem ég er að prjóna á mig. Ég er búin með 200 m af garni, eða 30 sm.Mig vantaði prjóna í stærð 5 og keypti prjóna frá KnitPro í Nálinni. Ég hélt nú að allir prjónar væru svipaðir í notkun en mér finnst þessir æðislega góðir, þeir eru beittari en venjulegir prjónar, og snúran er einhvern vegin liprari.
Næsti fundur í safnskólaumræðunni er á morgun í Víkurskóla kl. 17:30. Ég ætla að fara þangað og líka á miðvikudaginn þegar svoleiðis fundur verður haldinn í Borgaskóla kl. 17:30. Ég missti af fundinum í Korpuskóla, hann var sl. miðvikudag.
1 ummæli:
He is beautiful!
Skrifa ummæli