22. maí 2008

Sumarfríið nálgast óðfluga

Nú eru bara rétt rúmar 2 vikur eftir af þessu skólaári og mál til komið að fara að koma sér í sumargírinn. Ég er búin að leggja stærðfræðipróf fyrir 3 hópa af fjórum þannig að þetta er allt að koma, ég er byrjuð að taka til í stofunni til að létta á síðustu dögunum ef sólin skyldi nú skína.

Etsy töskurnar mínar fínu komu í dag, eiginlega viku fyrr en ég áætlaði, eintóm hamingja með það. Töskurnar eru auðvitað bara flottar og ég hlakka til að byrja að nota þær. Ég þurfti að borga tæplega 7000 kr fyrir þær og svo stendur á póstaðflutningsskýrslunni: A Tollur 656 kr, Ö2 VSK 24,5% = 1767 kr, og tollmeðferðargjald = 450 kr. Þannig að heildarsumman er tæplega 10.000 kr. sem ég er bara sátt við, eiginlega alveg eins og ég gerði ráð fyrir.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Um að gera að nýta tímann vel þar sem þú færð að hætta alveg heilum degi fyrr ;)
Knúsar úr miðbænum
e

Nafnlaus sagði...

já nákvæmlega, það sem ég gagnrýndi þegar þetta var til umræðu í haust, það þarf alltaf að vinna þessa vinnu. GE talaði meira að segja um núna um daginn að við ættum að setja allt ofan í kassa! Þá sagði ég NEI - hingað og ekki lengra.
J

Related Posts with Thumbnails