12. maí 2008

Vantar HM í Reykjavík

Hef svosem ekkert merkilegt að segja í bili. Guðný og Gunnar eru í Þýskalandi (smá öfund í gangi - en ekkert alvarlegt). Það er víst aðeins meira sumar þar en hér - hmmm skrítið.


Það er búið að vera rólegt hérna um helgina. Ólöf er búin að vera hjá mömmu og pabba meira og minna alla helgina og skemmti sér konunglega, vildi helst ekki koma heim aftur.

Ég fór í smá húsmæðraorlof á föstudaginn. Fór ein í bæinn, niður á Laugaveg, heimsótti dúllubúðina, og labbaði um Laugaveginn, Skólavörðustíginn og alla leið í Kirsuberjatréð. Ég ætlaði að kaupa mér eitthvað fallegt, en sá svo ekkert sem heillaði mig upp úr skónum. Langaði mest að vera með Guðnýju í HM, ég hefði örugglega fundið eitthvað þar.

1 ummæli:

Guðný sagði...

maður bara orðinn frægur fyrir ís og jarðaberjaát. Ótrúlegt hvað myndin er skýr, hún var tekin á símann hans Gunnars. En HM klikkar auðvitað ekki, sá fullt sem mig langaði í úr venjulegu deildinni en kemst auðvitað ekki í neitt og keypti því slatta í óléttudeildinni.

Related Posts with Thumbnails