Ég bauðst til að hjálpa til á fimleikasýningu hjá Fjölni í dag, Ólöf var að sýna. Þegar gestum var hleypt í salinn var einn strákur (9-10 ára) sem hengdi sig á handriðið og ég sagði honum að setjast, eftir augnablik var hann svo aftur sestur á handriðið, þannig að ég gekk að honum og sagði ákveðið (án nokkurs æsings) fáðu þér sæti, nú hef ég sagt þér þetta tvisvar og nú skaltu hlíða. Nema hvað við hliðína á stráknum krýpur ein mamma með tvö lítil börn sem eru svona við það að klifra á handriðinu, henni mislíkaði greinilega það sem ég sagði og hún sendi mér manndrápsaugnatillit, en færði sig samt ekki í sæti! Ég starði auðvitað bara á móti og hélt mínu striki.
Svo er fólk að tala um agaleysi í skólum landsins, þarna voru bara börn með foreldrum sínum. Á ekki ögunin að byrja heima?
1 ummæli:
Ooooh ég er svoooo sammála þér - þess vegna á maður ekki að taka að sér agamálin eftir vinnu hehe ;)
Skrifa ummæli