Ég fór í fyrstu staðlotuna í Borgó eftir hádegi í dag. Í dag var bara kynning á dreifnáminu, og þessum áföngum sem við tökum, ég tek bara tvo áfanga af því að ég fékk metna listaáfangana úr Kennó, þannig að þetta verður rólegt hjá mér. Síðan var kynning á UTN áfanganum sem allir þurfa að taka. Ég skoðaði fyrstu tvö verkefnin sem við eigum að skila og sprakk næstum úr hlátri - við eigum að finna mynd á netinu, geyma hana og setja í word skjal ásamt texta og verkefni 2 er að gera skjal með inndregnum línum og bullets. Ég ætla samt að vera í þessum áfanga, kannski læri ég eitthvað nýtt eða fæ flóknari verkefni.
Þegar tíminn var að verða búinn kom íþróttakennari skólans inn í stofuna til að minna okkur á að við þyrftum að skila íþróttaeiningum til að útskrifast, þá dó ég næstum úr hlátri, á að fara að senda aldraða konuna í leikfimi eins og í gamla daga. Ég spurði auðvitað hvort ég þyrfti endilega að fara í leikfimi en var þá sagt að fyrst ég væri með stúdentspróf þyrfti ég þess ekki. En svo kom í ljós að nemendur í Borgó fá frían aðgang að Heilsuakademíunni, World class og fleiri stöðum á ákveðnum tímum, soltið cool. Ó já ég verð að muna að sækja um ókeypis strætókort (af því að ég er alltaf í strætó!).
Og í lokin þá toppaði einn unglingurinn daginn:
unglingur: uuu heyrðu get ég ... fengið ... að skipta um hóp
kennari: af hverju viltu það?
unglingur: sko ... hérna ... ég á svo erfitt með að vakna á morgnana. (dreifnámið er þannig að við mætum kl. 9 á laugardagsmorgni þrisvar til jóla).
Þetta á eftir að verða bráðskemmtilegt.
2 ummæli:
Sæl Jóhanna :)
Frábært hjá þér að fara í dreifnám í Borgaskóla. Ég var í dreifnámi þar í Upplýsingatækni/Bókasafnstækni í tvö ár en tók frí frá námi til að opna búðina mína. Það var mjög gaman og ég lærði mikið sem hefur komið sér mjög vel í sambandi við reksturinn og netsíðuna. Svo mun fleira sem ég lærði nýtast mér í framtíðinni. Ef þú lendir hjá Kristjáni Ara þá er hann frábær kennari og sprenglærður.:) En hann er mjög strangur með allar mætingar í staðbundnulotunum og tímunum sem eiga sér stað á netinu í hverri viku, eins gott að mæta og taka vel þátt í tímunum því annars er dregið af einkunni hjá manni.
Ég óska þér svo góðs gengis í náminu.
Bestu kveðjur, Nína :)
úúúúhh þetta á eftir að verða mjög skemmtilegt hjá þér í vetur - jú gó görl :)
e
Skrifa ummæli