Hér er uppskrift af vettlingunum sem ég gerði um daginn.
Nú fer að sjá fyrir endann á önninni í BHS. Síðasta staðlotan er í lok nóv og þar með lýkur haustönninni. Þetta er búið að vera létt og skemmtilegt prógram. Eftir áramót fer ég í ljósmyndun og ljósmyndasögu og hlakka mikið til.
Næsta föstudag kl. 19:00 verður opnun á ljósmyndasýningu Fókus í Smáralind. Ég á eina mynd á sýningunni, sýnendur eru 32 talsins og mikið af mjög flottum myndum. Ég hvet ykkur til að fara og skoða. Ég held að sýningin verði í tvær vikur.
1 ummæli:
Sæl Jóhanna.
Takk fyrir að setja vettlinga uppskriftina inná vefinn þinn. Nú er bara að spreyta sig á henni.
Gangi þér vel í ljósmyndasögu tímanum. Þetta er skemmtilegt námsefni og kennarinn góður.
Bestu kveðjur, Nína Margrét.
Skrifa ummæli