10. nóvember 2008

Sparnaðarráð í kreppunni

Ég var nú búin að ákveða það að það er nóg talað um kreppuna þó ég fari nú ekki að byrja á því líka ... en ég var að föndra um helgina og langar að sýna ykkur.

Vaxlitir bakaðir í siliconformi við 150°C hita í 10 - 15 mín.

Kærustuparavettlingar, einn karlvettlingur, einn kvenvettlingur og einn miðjuvettlingur þar sem hægt er að leiðast í rómantískum gönguferðum.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

oooh þú ert svo mikill snillingur :) - er samt alveg enn að bíða eftir öllum húfunum sem þú áttir að vera að prjóna í staðinn fyrir kærustuvettlinga og bræða hálft heimilið í hjartaform hihi ;)

litirnir? - virka þeir eftir svona bráðnun?

ég er með eitt gott ráð líka til að bræða í ofninum - litlu nammipokarnir (kallaðir krónupokar í DK) - ponsulitlu nammipokarnir bræddir í ofni í nokkrar mínútur á 100° og þá verða þeir flottir eyrnalokkar :)

Nafnlaus sagði...

Ég er að prjóna húfu! Ég er komin að úrtökunni.
Litirnir virka fínt eftir bráðnun, stelpurnar voru rosa ánægðar með litina.
JH

Nafnlaus sagði...

En sniðugt þetta með að bræða litina í ofninum, er svo hægt að lita með þeim aftur?

Skemmtilegir kærustupara vettlingarnir. Get ég fengið uppskriftina hjá þér?

Kær kveðja (í kreppunni)
Nína :)

Related Posts with Thumbnails