Við vorum að ræða það á kaffistofunni í gær í vinnunni að fingrasetning á lyklaborð er líklega það sem hefur nýst okkur best af því sem við lærðum í menntaskóla.
Ég er búin að vera svo löt undanfarið, löt að taka myndir, löt að æfa mig í Photoshop, löt að elda, löt að þrífa, bara löt ... En nú er sólin farin að skína meira á hverjum degi og vonandi fer það að hafa áhrif. Ég var smá dugleg áðan, tók allar myndirnar af fjölskyldumyndaveggnum og þreif þær og vegginn líka. Rykhreinsaði meira að segja ofninn undir myndunum. Það er svona þegar sólin skín inn um gluggana þá sést allt rykið og þá getur maður ekki annað en náð í tuskuna.
Á mánudaginn ætla ég í Beco og kíkja. Kannski eyði ég einhverju af afmælispeningunum mínum.
Við Ólöf gengum á alla glugga í húsinu í morgun og þurrkuðum bleytu úr þeim. Það er svo mikið frost að gluggarnir sagga allir. Sum opnanlegu fögin voru frosin aftur, ég notaði auðvitað kraftana og ýtti einum þeirra upp og eyðilagði stormjárnið í leiðinni. En ég fór bara í Húsasmiðjuna, keypti nýtt og skipti um.
1 ummæli:
Leti þín er kölluð ýmsum nöfnum en vinsælasta nafnið er skammdegisþunglyndi og hrjáir hún marga Frónlendinga um þessar mundir ;) en með hækkandi sól og hlýnandi veðri snautast hún í burtu, sem betur fer!
Hafðu engar áhyggjur af smá ryki sem læðist fram til að hrella þig, kæra Steingeit, kveiktu bara á kertum á kvöldin þá sést það ekki.
Með kveðju, Nína M :)
Skrifa ummæli