15. febrúar 2008

Er komið vor?

Svei mér þá ef vorið er ekki að brjótast út úr snjónum og klakanum. Það var líka alveg kominn tími til.
Það hefur nú ýmislegt gerst í vikunni, t.d. var hin árlega árshátíð skólanna á föstudaginn í fárviðri, en við létum það ekki stoppa okkur. Svo fórum við hjónin á Maritas fræðslu í skólanum, ég fór á SPK kvöld og síðan átti Siggi auðvitað afmæli og hingað hópuðust þó nokkrir gestir þó ekkert formlegt afmælisboð væri. Við 3 í litla ljósmyndaklúbbnum hittumst svo í morgun og prófuðum nýju stúdíóljósin sem IH fékk að kaupa fyrir skólann. Og nú er Ólöf mín orðin lasin, hún gubbaði og er mjög slöpp, sefur bara.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails