Ég sannfærðist um það í dag að vorið er komið, þrátt fyrir að það hafi snjóað í nótt. Ég fór í Grasagarðinn til að reyna að ná myndum fyrir lokaverkefnið mitt í ljósmyndun og held bara að það hafi tekist. Við mæðgur fórum svo út að hjóla í dag. Þetta er búið að vera yndislegur dagur, bjartur og fallegur, logn og sól. Þessi skógarþröstur var svo upptekinn við að snyrta sig fyrir vorið að ég komst mjög nálægt til að taka myndir af honum. Ég notaði 50mm linsuna í þessar.

Fleiri myndir á Flickr
Engin ummæli:
Skrifa ummæli