9. maí 2010

Mæðradagurinn

Í dag er mæðradagurinn, dagur sem ég spái nú ekki venjulega mikið í. Dagurinn var einn af fyrstu vor/sumardögunum hér í höfuðborginni, logn, hlýtt og sólskin. Fallegur dagur með smá garðvinnu, kaffi og lummum á pallinum.

Í dag hugsum við líka hlýtt til stjúpdóttur minnar því hún missti móður sína í dag. Innilegar samúðarkveðjur til hennar og fjölskyldu hennar.

2 ummæli:

e sagði...

Æææ svona lífsreynslur taka alltaf á. Stjúpdóttirin á svo sannarlega gott að eiga þig að mín kæra.
Farið vel með ykkur.

frugalin sagði...

Takk fyrir það Elín mín

Related Posts with Thumbnails