13. maí 2010

Ég þrái sumarleyfi



Þegar veðrið er svona gott dag eftir dag fer maður virkilega að þrá sumarleyfið eftir langan og strembinn vetur. Allt það sem mig langar að gera og framkvæma er að mótast í langan og góðan lista í hausnum á mér. Ég hlakka til að dúllast og snúast í ýmsu í húsinu mínu og garðinum. Ég er byrjuð að skipuleggja allar lautarferðirnar sem ég ætla í og vonandi koma einhverjir með mér. Nýja saumavélin okkar GM fær að finna fyrir því, efnisstrangarnir verða keyptir í bunkum. Ég fékk smá forsmekk að sælunni í dag í ferð með Flickr konum í Grasagarðinn, það er nú meira hvað það er yndislegur staður. Að rölta þar um, skoða blómin og hlusta á fuglasönginn er á við margra vikna slökun. Ekki skemmdi góður félagsskapur í dag. Ég er svo ánægð með þennan hóp kvenna sem ég er komin í, allt konur á góðum aldri sem hafa ánægju af passlega löngum ferðum og fallegum stöðum til myndatöku.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails