Frú Galin vill helst af öllu gera matseðil og versla bara einu sinni eða tvisvar í viku. Það er nú erfiðara en það virðist. Í morgun fékk ég kast og bjó til þessa krúttlegu matseðla sem passa á A4 blað. Skrautið er frá Shabby Princess, síða sem er afskaplega flott og fullt af fríu niðurhali til að leika sér með.
Ef ég gef mér tíma til að útbúa matseðilinn sparar það ekki bara peninga í hverri viku heldur líka tíma og pirring yfir því hvað á að vera í matinn. Vildi samt að hinir í fjölskyldunni væru duglegri að koma með hugmyndir, en það kemur kannski með tíð og tíma.
ps. hægri smella á myndina og velja "save picture as", þá getur þú líka gert matseðil.

2 ummæli:
Takk takk mín kæra - ekki að ég eigi eftir að nenna að búa til matseðil - been there done that....en samt mjög sniðugt ef það virkar til að virkja aðra á heimilinu - tókst ekki hjá mér...búhú
Við makkafólkið þurfum bara að draga myndina út á skjáinn hjá okkur og þá er hún kópíeruð ;)
jájá, þið makkafólkið ...
ég held einmitt að þetta virki ekki heldur hjá mér en ég þrjóskast við.
Skrifa ummæli