Tók þessa tvo gömlu bakka og ákvað að lappa aðeins upp á þá. Ég keypti kalkmálningu hjá Byko og málaði þá hvíta. Kalkmálningin er soldið skemmtileg því hún gefur hlutunum svona veðrað yfirbragð.
Mér fannst þetta heppnast alveg ágætlega nema í lokin. Þá ákvað ég að setja lakk í botninn á stóra bakkanum. Lakkið sem ég fann inni í bílskúr var gamalt og ónýtt og botninn varð allur gulleitur. Ég þarf að vinna í því að laga það einhvern veginn, ætli ég þurfi ekki að pússa þetta upp og gera upp á nýtt.
Á mánudaginn ákvað ég að nú væri kominn tími á að taka þvottahúsið í gegn, það var síðast málað fyrir 12 árum og því kominn tími á framkvæmdir fyrir nokkrum árum síðan! Ég byrjaði á að tæma það, sem var soldið mikið því þvottahúsið er notað sem geymsla líka, sjá hillur upp við loft.
Þetta er snilldarráð sem ég sá einhvers staðar, með því að setja málningarbakkann í poka þarf ekki að þvo bakkann og maður á alltaf nýjan og flottan málningarbakka. Ég ákvað að mála, gluggapóstana, veggina og loftið. Það þurfti að laga samskeytin milli veggja og lofts, herra handlaginn gerði tilraun í þvottahúsinu þarna fyrir 12 árumog setti pappírsborða í samskeytin sem hann límdi fastan með málningunni. Í stuttu máli sagt misheppnaðist þessi tilraun og borðarnir hafa gapað á mig undanfarin ár og valdið mér pirringi í hvert sinn sem ég lít á þá. Ég keypti því frauðplastlista sem herra handlaginn setti upp fyrir mig með sílikoni. Hann náði samt að klúðra málum með því að maka sílikoni á veggina og getiði hvað ... málning festist ekki á sílikoni!!! En eftir að ég hef pússað með sandpappír, skafið með kíttispaða, grunnað yfir og málað nokkrar umferðir sést sílikonklúðrið bara smá.
Gluggakistan í þvottahúsinu hefur alltaf verið alveg svakalega ljót (svona eins og í eldhúsinu, en það er næsta verk) þannig að ég ákvað að kaupa litlar mósaik glerflísar og setja í gluggakistuna. Það er allt annað að sjá þetta núna, eins og nýtt hús.
Nú á ég bara eftir að mála hilluna með gardínustönginn hvíta með kalkmálningunni og finna einhverjar ótrúlega sætar gardínur.
Hér má sjá þvottahúsið eftir svaka tiltekt fyrir jólin.
Næsta verkefni verður sennilega að taka til í forstofuskápnum og kommóðunni.






2 ummæli:
ég þarf nú að fara að koma og skoða þvottahúsið. þetta lofar mjög góðu. Glugginn er geggjaður.
Æðislegt - þú ert svoooo dugleg.
Þarf að verða mér úti um svona kalkmálningu.
Skrifa ummæli